Sunnudagur 5. maí, 2024
6.1 C
Reykjavik

Slíta samstarfi vegna kvennaverkfallsins: „Stríðir gegn gildum“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Kvennaverkfall hefur áhrif á bókaútgáfu.

Knattspyrnuversluninn Heimavöllurinn hefur ákveðið að slíta samstarfi við Pennann/Eymundsson en til stóð að halda útgáfuhóf í til að fagna útgáfu bókar sem Sveindís Jane Jónsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, skrifaði. Ástæða fyrir samstarfsslitunum er að sögn Heimvallarins afstaða Pennans/Eymundsson á verkfallsdegi kvenna og kvára þann 24. október.

„Til stóð að Heimavöllurinn myndi halda útgáfuhóf í dag laugardaginn 28. október í samstarfi við Pennann/Eymundsson til að fagna útgáfu bókar Sveindísar Jane Jónsdóttur, leikmanns íslenska landsliðsins og Wolfsburg í knattspyrnu,“ segir í yfirlýsingunni.

„Í ljósi frétta um afstöðu Pennans/Eymundsson á verkfallsdegi kvenna og kvára þann 24. október síðastliðinn höfum við á Heimavellinum ákveðið að draga okkur út úr samstarfinu með Pennanum/Eymundsson þar sem afstaða þeirra stríðir gegn gildum Heimavallarins og því sem við stöndum fyrir. Við höfum reynt að fá frekari svör frá Pennanum/Eymundsson án árangurs,“ en Heimvöllurinn hefur verið leiðandi þegar kemur að knattspyrnuvörum fyrir konur og karla.

„Markmið verslunar Heimavallarins hefur frá upphafi verið að stuðla að jafnrétti og auka fjölbreytni fyrirmynda í knattspyrnu. Þetta höfum við gert með því að standa við bakið á íslenskum knattspyrnukonum, segja sögu þeirra, auka sýnileika þeirra og halda viðburði þar sem að ungir knattspyrnuiðkendur geta hitt átrúnaðargoð og fyrirmyndir sínar augliti til auglitis.“

„Við stöndum fullum fetum við bakið á Sveindísi og munum styðja hana í öllum hennar verkefnum. Við hlökkum til að halda áfram að aðstoða Sveindísi við afhendingu, kynningu og sölu á bókinni,“ segir í yfirlýsingunni að lokum.

- Auglýsing -

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -