Föstudagur 26. apríl, 2024
6.1 C
Reykjavik

Þessir þrír voru stungnir á Bankastræti Club – „Þetta eru bara skíthælar“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Þegar ég stend upp þá sé ég bara að það er einhver bútur út úr bakinu mínu – bara hangandi út og þá fattaði ég að ég hefði verið stunginn,“ segir Lúkas Geir, einn þeirra þriggja gesta sem stungnir voru á skemmtistaðnum Bankastræti Club fyrir helgi.

27 manna hnífaher sem huldi höfuð sín réðist á þrjá menn um tvítugt á Bankastræti Club. Þremenningarnir særðust alvarlega í hnífaárásinni en eru ekki taldir í lífshættu. Hótanir höfðu gengi á milli mannanna á samfélagsmiðlum fyrir árásina.

Sjá einnig: Margstunginn á Bankastræti Club og sendir kveðju frá sjúkrabeði: „Nokkrar stungur, ekkert stress!“

Lúkas og félagi hans, John Sebastian eru enn á sjúkrahúsi vegna áverka sem þeir hluti í árásinni. Vinur þeirra, ungur drengur sem kallar sig Luffro, var líka stunginn. Þrátt fyrir að 27 árásarmenn hafi ráðist að honum með hnífum virðist hann hvergi banginn í kveðju sem hann sendir frá sjúkrabeðinu og birti á samfélagsmiðlum:

„27 að ráðast á 3 og við erum enn labbandi. Nokkrar stungur, ekkert stress.“

Lúkas og John ræddu árásina við útsvarpsmanninn Gústa B.

- Auglýsing -

„Svo bara kemur hópur af grímuklæddum mönnum bara rushar á okkur. Við héldum að þetta væru svona fimmtán þangað til lögreglan bara sagði við okkur: Svo kemur í ljós að þeir voru 27. Ég held þeir séu bara jealous því við erum með mikla athygli á okkur,“ segir Lúkas og bætir við: 

„Í flestum tilvikum þá veistu ekki að þú sért stunginn fyrr en þú sérð það sjálfur.Ég get sagt þér það að þessir drengir eru búnir að vera með stríð við okkur í svolítið góðan tíma. Því þeir vilja vera mennirnir. Þeir þurfa að vera 27 saman til að ná okkur þremur. Þetta eru bara skíthælar. Við vorum bara á latino-kvöldi.“

Luffro sendi kveðju frá sjúkrabeðinu.

Sjá einnig: Birgitta Líf opnar sig um hnífaárásina í nótt: „Þökkum Guði að ekki fór verr“

- Auglýsing -

Hótanir flugu á víxl opin­ber­lega á sam­fé­lags­miðlum skömmu fyrir á­rásina á Banka­stræti Club. Mennirnir eru sagðir hafa verið „í stríði“ á sam­fé­lagmiðlum og greinilegt að fram fór uppgjör í undirheimunum á Bankastræti Club.

Einn af eigendum skemmtistaðarins, Birgitta Líf Björnsdóttir, er afar þakklát öllum þeim sen hjálpuðu á staðnum eftir hina alvarlegu hnífaárás. „Við hjá Banka­stræti um­berum ekki of­beldi af neinu tagi og leggjum mikið upp úr öryggi gesta okkar og þjálfun starfs­fólks,“ segir Birgitta Líf. „Þökkum guði að ekki fór verr. Of­beldi á hvergi heima,“ bætir hún svo við.

Sjá einnig: Hettuklæddir hnífamenn réðust inn á Bankastræti Club – Þrír slasaðir eftir hnífaárás

Gabríel afplánar nú dóm á Litla-hrauni.

Hinir særður eru góðvinir Gabríel Douane Boama, sem strauk úr Héraðsdómi Reykjavíkur fyrr á árinu. Afplánar Gabríel nú dóminn í fangelsinu á Hólmsheiði en var hann fyrr á árinu dæmdur í átján mánaða fangelsi. Dómurinn var vegna endurtekna líkamsárása, þjófnaðar, fíkniefnalagabrots og brot gegn valdstjórninni.

Daginn eftir árásina sendi Gabríel einnig frá sér kveðju á samfélagsmiðlum, þar sem hann er augljóslega reiður eftir árásina á Luffra og aðra vini sína:

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -