Föstudagur 26. apríl, 2024
2.1 C
Reykjavik

Myndband dagsins: Sjáðu þegar Guðmundur Felix borar í nefið í fyrsta sinn í 23 ár

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Þau undur og stórmerki urði í dag að Guðmundur Felix Grétarsson náði að bora í nef sitt í fyrsta sinn í 23 ár. Það tókst honum að gera með nýju ágræddri hönd sinni, eins og sjá má í myndbandinu sem fylgir hér að neðan.

Í gærkvöldi upplifið Guðmundur Felix svo sannkallaða veislu þegar honum var boðð upp á íslenska kjötsúpu og skúffuköku sem móðir hans, Guðlaug Ingvadótir, færði honum. Guðmundi finnst hann eiga bestu mömmu í heimi.

Af heilsufari Guðmundar eru þær fregnir að útlit fyrir að líkami Guðmundar Felix Grétarssonar sé byrjaður að hafna höndunumm sem voru ágræddar á hann. Hann biður Íslendinga um að óttast hvergi því slík höfnun sé algeng og nú er hann í lyfjameðferð vegna hennar.

„Ég er mjög glaður með árangurinn. Þetta er ekkert til að hafa áhyggjur af,“ segir Guðmundur Felix í myndbandi sem hann birti á Facebook-síðu sinni fyrir skömmu.

Sjá einnig: Bakslag hjá Guðmundi Felix – Líkaminn byrjaður að hafna höndunum

Guðmundur Felix er sá fyrsti í heiminum til að fá grædda á sig handleggi annars manns og var það gert nákvæmlega 23 árum eftir að hann missti báða hendleggi sína í slysi. Nýlega birti hann myndir af höndunum sem líkaminn er nú byrjaður að hafna.

Guðmundur Felix upplýsir fylgjendur sína á Facebook reglulega um stöðu mála eftir aðgerðina. Fyrir klukkustund birti hann myndband þar sem hann greinir frá því að fyrir tveimur dögum tóku læknar eftir merkjum um höfnun líkamans á nýjum handleggjunum. Guðmundur biður fólk ekki að óttast.

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -