Hundur í óskilum heldur áfram að gleðja landann með aðferðum sem fáar, ef einhverjar, íslenskar hljómasveitir hafa reynt. Næstu tónleikar sveitarinnar eru á Græna Hattinum á Akureyri föstudaginn 7. júlí.
Blóðmerahald, vændi á Vestfjörðum, kynleiðréttingar og sala Íslandsbanka verða meðal þeirra málefna sem hljómsveitir ætlar að tækla á tónleikunum. Hljómsveitin sem hefur verið starfandi síðan árið 1994 en hljómsveitin er skipuð þeim Hjörleifi Hjartarsyni og Eiríki Stephensen. Hljómsveitin hefur gefið út tvær plötur, Hundur í óskilum og Hundur í óskilum snýr aftur, sem fengu báðar góða dóma. Einnig samdi hljómsveitin tónlist við sýningu á Íslandsklukkunni sem Benedikt Erlingsson leikstýrði frá 2010 til 2011 og hlaut hljómsveitin Grímuverðlaun fyrir tónlistina.
Hér fyrir neðan er hægt að horfa á verkalýðskabarett sem hljómsveitin setti saman í tilefni 100 ára afmælis ASÍ.