Fimmtudagur 2. maí, 2024
6.1 C
Reykjavik

Fuglaflensuvírusar blandast saman við Íslandsstrendur: „Svo þetta er svolítill hrærigrautur hér“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ísland er suðurpottur fyrir fuglaflensuna sem herjar ná á Ameríku og Evrópu. Kemur þetta fram í niðurstöðum rannsókna hér við land.

Víkurfréttir segir frá því að fuglaflensuvírusar frá Ameríku og Evrópu blandast saman á Íslandi. Náttúrustofa suðvesturlands og þekkingarsetur Suðurnesja, sem aðsetur hafa í Suðurnesjabæ, hafa í samstarfi við bandaríska stofnun, sem sérhæfir sig í slíkum málum, komist að þessari niðurstöðu. Frá því snemma á síðasta ári hefur fuglaflensan lagst þungt á fuglategundir á borð við súluna við Íslandsstrendur.

„Það voru gerðar kannanir á súlunni í Eldey og það voru ekki fallegar myndir sem komu þaðan. Súlunni almennt í Atlantshafi gekk illa og fékk þungt högg. Við vorum að sjá fullorðna einstaklinga sem voru að hríðfalla. Þetta var ekki bara ungviði. Kollegar mínir, sem ég vinn mikið með, og voru að fara í eyjar í Skotlandi, Kanada og Noregi höfðu allir sömu sögu að segja. Það virðist sem fuglaflensan herji á þá fugla sem eru í miklum þéttleika eins og súlan var á þessum tíma. Þær virðast vera að lenda illa í því,“ segir Sölvi Rúnar Vignisson, fuglafræðingur, í viðtali við Suðurnesjamagasín í síðustu viku að því er segir á vef VF.

„Við hér hjá Þekkingarsetrinu og Náttúrustofunni, sem er í sama húsi, stúteruðum fuglaflensuna og hvernig hún dreifir sér um heiminn í samstarfi við bandaríska stofnun, sem er ein sú stærsta sem sér um þessa hluti. Í samstarfi við þá komumst við að því að evrópskir vírusar og amerískir vírusar í þessum fuglum eru að hittast á Íslandi og blandast þar. Menn hafa hingað til verið að horfa á Kyrrahafið og Kyrrahafsleiðina í gegnum Rússland en í raun er suðupotturinn hér. Hér erum við með tegundir sem verpa í Kanada eða færast á milli. Svo erum við með hanana okkar sem fara inn í Kyrrahafið með vetursetu þar, svo þetta er svolítill hrærigrautur hér og þessir vírusar eru að hittast hérna.“

Hægt er að horfa á frétt VF hér að neðan:

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -