Laugardagur 4. maí, 2024
6.8 C
Reykjavik

Nágrannar björguðu einbýlishúsi frá eldsvoða: „Það þarf ekki meira en garðslöngu og slökkvitæki“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Snarræði nágranna bjargaði einbýlishúsi frá stórbruna. Annar nágranni vakti sofandi íbúann og kom honum út.

Sunnlenska segir frá því að í fyrradag hafi íbúi á neðri hæð tveggja hæða einbýlishúss við Þelamörk í Hveragerði, bjargast út eftir að eldur kom upp á svölum hússins. Fjölskyldan á efri hæðinni var að heiman.

Friðrik Sigurbjörnsson, sem býr í næstu götu, varð var við eldinn um klukkan 7 um morguninn. Hringdi hann í Neyðarlínu og þaut svo af stað og vakti íbúann á neðri hæðinni með banki.

„Ég held að ég hafi aldrei barið jafn fast á dyr og rúður og þennan morguninn enda stressaður yfir því að fimm manna fjölskyldan á efri hæðinni væri heima. Allir voru auðvitað í miklu sjokki í morgun, en sem betur fer fór þetta betur en á horfðist þó að einhverjar skemmdir hafi orðið á húsinu,“ sagði Friðrik í samtali við Sunnlenska.

Aðrir nágrannar, sem vöknuðu við brothljóð og hvelli frá eldinum, tóku sig til og drógu fram garðslöngu og slökkvitæki og náðu að halda eldinum í skefjum þar til slökkviliðið mætti á staðinn.

„Þau björguðu þessu bara, það er alveg óhætt að segja það. Eldurinn var á svölunum en það var snarræði nágrannanna að þakka að hann barst ekki inn í húsið,“ sagði Lárus Kristinn Guðmundsson, varaslökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu, í samtali við sunnlenska.is. „Það þarf ekki meira en garðslöngu og slökkvitæki til þess að gera gagn, þannig að þegar við komum á vettvang gekk slökkvistarfið hratt fyrir sig. Reykkafarar fóru inn í íbúðina til þess að við værum fullvissir um að það væri enginn heima og við þurftum síðan að opna þakið til þess að sjá hvort þar leyndist glóð,“ bætti Lárus við.

- Auglýsing -

Fram kemur í fréttinni að slökkviliðsmenn frá Hveragerði hafi unnið að slökkvistarfinu ásamt einni vakt frá Selfossi en notast var við dælubíl og stigabíl, en auk slökkviliðsins var lögreglan og sjúkraflutningamenn kallaðir á vettvang.

 

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -