Föstudagur 26. apríl, 2024
2.6 C
Reykjavik

Segir Sjálfstæðisflokkinn hafa hækkað laun formanns bæjarráðs Árborgar um 210 prósent

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Tómas Ellert Tómasson, fyrrverandi bæjarfulltrúi í Árborg segir að bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafi í lok síðasta kjörtímabils í sveitarfélaginu, kosið gegn því að bæjarstjórnin gengi til samstarfs við KPMG um árangursstjórnun í fjármálum Árborgar.

Sjá einnig: Selfoss er á barmi gjaldþrots: „Ég geri ráð fyrir að það verði einhver hagræðing“

Pistill sem Tómas Ellert Tómasson skrifaði, birtist í gær í sunnlenska.is en þar bendir hann á tvískinnungshátt Sjálfstæðisflokksins sem sagði frá slæmri fjárhagsstöðu sveitarfélagsins í fréttum í gær. Í pistlinum bendir Tómas einnig á að í stað þess að ráðast strax í þá vinnu sem búið var að samþykkja í bæjarstjórn, eftir samstarfið við KPMG, hafi það verið fyrsta verk nýs bæjarstjórnarmeirihluta Sjálfstæðisflokksins að hækka laun formanns bæjarráðs um heil 210 prósent, ofan á önnu laun og þóknanir.

Pistilinn má lesa í heild sinni hér að neðan.

Falskur tónn sleginn í Árborg

Fyrir ári síðan eða í lok sl. kjörtímabils var samþykkt á bæjarstjórnarfundi að ganga til samstarfs við KPMG um árangurstjórnun í fjármálum sveitarfélagsins. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins kusu gegn tillögunni og óskuðu eftir frestun málsins. Nú kveður við annan tón, sem betur fer.

- Auglýsing -

Sveitarfélagið Árborg hefur vaxið mikið á undanförnum árum og stefnir í áframhaldandi vöxt vegna eftirspurnar frá nýjum íbúum og áforma landeigenda um uppbyggingu.

Miklum vexti fylgja ýmsar áskoranir fyrir sveitarfélagið í fjármálum. Víðtæk uppbygging á nauðsynlegum fjárfrekum innviðum og margvísleg þjónusta og vaxandi umsvif er allt hluti af þeim áskorunum sem takast þarf á við stjórn fjármála hjá sveitarfélaginu.

Þáverandi og núverandi efnahagsástand með mikilli og vaxandi verðbólgu gerir enn flóknari þá áskorun að stýra fjármálum sveitarfélags á borð við Árborg með sem farsælustum hætti. Af þeim sökum gékk þáverandi bæjarstjórnarmeirihluti Svf. Árborgar til samstarfs við KPMG um árangurstjórnun í fjármálum sveitarfélagsins.

- Auglýsing -

Í stað þess að ráðast strax í þá vinnu sem að búið var að samþykkja í bæjarstjórn að þá var fyrsta verk nýs bæjarstjórnarmeirihluta Sjálfstæðisflokksins að hækka laun formanns bæjarráðs um 210%, ofan á föst bæjarfulltrúalaun og þóknanir fyrir formennsku í fastanefnd og nefndum byggðasamlaganna. Laun og þóknanir sem skila formanni bæjarráðs yfir einni og hálfri milljón króna á mánuði eða 18mkr. á ári.

Vonandi fá íbúar að sjá á íbúafundi á morgun að ein sparnaðartillagan feli í sér að formaður bæjarráðs dragi til baka sjálftökuna og endurgreiði íbúum sveitarfélagsins oftökuna. Annað er að slá falskan tón í ráðdeildinni.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -