Körfuknattleikskona Vals birtir miður geðsleg skilaboð sem bárust tveimur leikmönnum liðsins í gær.
Helena Sverrisdóttir, körfuknattleikskona Vals, birti færslu á Twitter í gær þar sem hún birti ógeðfeld skilaboð sem tveimur leikmönnum liðsins bárust eftir leik gegn Haukum í VÍS bikarnum.
Valur tapaði leiknum með 59 stigum gegn 68 stigum Hauka en manneskjan sem sendi skilaboðin á tvo leikmenn liðsins virtist óánægð með frammistöðu þeirra. „Eðlilegt að koma heim eftir leik og fá svona skilaboð….. er ekki í lagi?! Enginn að segja mér að það séu það miklir peningar í að betta á kvk körfu á Íslandi að réttlæta svona hegðun,“ skrifaði Helena og birti skjáskot af skilaboðunum.