Undanfarnar vikur hefur brunavargur gengið laus á Selfossi en hefur hann sérhæft sig í að kveikja í ruslagámum. Síðast kveikti hann í ruslagámi við Vefjuna við Tryggvagötu og stuttu síðar í ruslagámi við Vallaskóla.
Samkvæmt frétt sunnlenska.is, sést aðili í eftilitsmyndavélum, í blárri úlpu, svartri hettupeysu, dökkum buxum og dökkum skóm með hvítri rönd koma eftir Bankavegi kl. 2:33, fara inn á Sólvelli, stoppa í stutta stund við inngagninn að íþróttahúsinu en halda svo áfram þar til hann kemur að gámnum sem staðsettur er á milli íþróttahússins og sparkvallarins og kveikja í innihaldi gámsins. Hleypur svo brunavargurinn af vettvagni austur Sólvelli.
Á næstunni mun lögreglan byrja á að sýna öllum lögreglumönnum myndbandið en ef enginn kannast við hann, reiknar hún með að birta myndir í fjölmiðlum í þeim tilgangi að upplýsa um hver hann er.
Þrátt fyrir að einhver kunni að telja það saklaus iðja að kveikja í ruslagámi, telur lögreglan það ljóst að hætta af íkveikjum sem þessum geti verið gríðarleg. Því óskar lögreglan á Suðurlandi eftir upplýsingum frá hverjum þeim sem vitað geta eitthvað um málið.