Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra tekur vel í tillögu Runólfs Þórhallssonar, aðstoðaryfirlögregluþjónar í greiningardeild ríkislögreglustjóra, um meiri rannsóknarheimildir íslenskrar lögreglu. Þá sé það í takti við núverand heimsmynd en Morgunblaðið fjallaði um málið í dag.
Þar ítrekar Jón mikilvægi nýs frumvarps umvíðtækar heimildir lögreglu og segir að einkenni skipulagðar glæpastarfsemi sé að hún virðir engin landamæri. „Við erum með frumvarp nánast tilbúið sem verður lagt fram strax í haust, um víðtækar heimildir lögreglu,“ sagði Jón og bætti við að frumvarpið hafi verið tilbúið í nokkra mánuði og ekki gefist tími til að leggja það fram. Aðspurður hvort frumvarpið innihaldi leyfi til þess að afla upplýsinga þegar kemur að hryðjuverkaógn á Íslandi, segir Jón svo vera. Þá sé það í samræmi við nágrannalönd.