Stjórn Blaðamannafélags Íslands fordæmir tölvuárásina á vef Fréttablaðsins í dag.
Í yfirlýsingu frá stjórn BÍ kemur fram að félagið fordæmi allar tilraunir til þess að hafa áhrif á fréttaflutning fjölmiðla. Lítur félagið á tölvuárás á vef Fréttablaðsins í morgun, vera alvarlega tilraun til þess.
Ljósmyndin sem Fréttablaðið birti í morgun.Stjórn Blaðamannafélagsins fjölluðu um málið í dag og samþykkti eftirfarandi samþykkt:
Tölvuárás á vef Fréttablaðsins er alvarleg tilraun til að hafa áhrif á sjálfstæða ritstjórn íslensks fjölmiðils. Samkvæmt bréfi sem ritstjórn blaðsins barst í nótt er árás hótað vegna myndbirtingar Fréttablaðsins í umfjöllun um innrás Rússa í Úkraínu. Áður hefur rússneska sendiráðið á Íslandi krafist afsökunarbeiðni frá ritstjóra Fréttablaðsins vegna myndbirtingarinnar.
Mikilvægi sjálfstæðra og frjálsra fjölmiðla er sérlega mikilvægt í stríðsástandi og fordæmir Blaðamannafélag Íslands allar tilraunir til að hafa áhrif á fréttaflutning fjölmiðla frá stríðinu í Úkraínu. Fréttablaðið hefur kært málið til lögreglu sem hefur það nú til rannsóknar.