Lögreglan á Norðurlandi eystra varar við netsvindli í gegnum Facebook sem gengur út á að ná persónuupplýsingar af fólki.
Felast svikin í að viðkomandi eru send skilaboðið í gegnum skilaboðaskjóðu Facebook og af gervireikningi einhvers sem viðkomandi er tengdur. Óskar svikahrappurinn eftir símanúmeri þess sem herjað er á. Ef það fæst fram er óskað eftir að viðkomandi taki þátt í sms-leik og send talnaruna í skilaboðum og farið fram á að sendar séu myndir af greiðslukortum.
Rétt er að minna fólk á að gefa aldrei upp greiðslu- eða kortaupplýsingar sínar nema fyllstu varúðar sé gætt.