„Við vorum kærðir fyrir guðlast og við vorum kærðir fyrir klám. Það var auðvitað erfitt, þótt við hefðum í rauninni allan tímann húmor fyrir því. Það sem kannski bjargaði okkur, var það að hafa alltaf húmor fyrir því sem var borið upp á okkur,“ sagði Karl Ágúst Úlfsson um þá Spaugstofuvini í nýju viðtali Mannlífs.
„Við fengum alls konar gagnrýni. Sumt var bara bull og einhver illkvittni sem fólk vildi beita okkur. Þegar við vorum búnir að jafna okkur á sárindunum sem fylgdu, þá fórum við að tala um það okkar á milli að kannski væri eitthvað til í þessu og hvort við ættum kannski að skoða það og mögulega gera eitthvað í því og prófa að fara aðrar leiðir heldur en við höfðum verið að gera undanfarið.“
Karl Ágúst setur upp kveðjusýninguna Fíflið en segir hann frá henni í viðtali við Reyni Traustason. Þar segir Karl frá sínum uppáhaldskarakterum og álaginu sem fylgdi vinnunni. „Ég er búinn að starfa í leikhúsheiminum og leiklistarheiminum í yfir 40 ár. Þetta er orðinn svolítið stór pakki. Ég hef tekist á við mörg störf innan þessa geira.“ Viðtalið má lesa í heild sinni í nýju blaði Mannlífs.