Í færslu Landhelgisgæslunnar á samfélagsmiðlinum Facebook er varað við mikilli ölduhæð – norður og norðaustur af landinu – samhliða afar hvössum vindi fyrir norðan á morgun og mánudag.
Ásamt þessari miklu ölduhæð er ljóst að það má búast við mjög miklu brimi við ströndina á norðausturhorninu:
„Nú er stækkandi straumur; og þar sem gera má ráð fyrir talsverðum áhlaðanda við norður- og norðausturströndina gæti sjávarstaða þar orðið hærri en að öllu jöfnu. Hvetur Landhelgisgæslan eindregið til að hugað verði að bátum í höfnum og hvatt er til aðgæslu við ströndina þar sem sjór gæti gengið á land.“