Eins manns bandið Myrkvi er orðið að dúetti og gefur út glænýtt lag á nýju ári.
Myrkvi er orðið tvíeyki eftir inngöngu Yngva Holm en fyrir var Magnús Torlacius en saman léku þeir í hljómsveitinni Vio sem sigraði Músíktilraunirnar árið 2014 en ári seinna hlaut Vio tilnefningu sem Bjartasta vonin á íslensku Tónlistarverðlaununum.
Í dag kom út spánýtt lag hjá Myrkva sem ber heitið Draumabyrjun en í samtali við Mannlíf segir Magnús að þeir félagar „vonist til þess að það gefi góð fyrirheit um komandi ár. Lagið fjallar einmitt um upphafið á okkar tónlistarferli“
„Sprækir indírokk tónar kallast á við sýkadelíska slyddu,“ segir Magnús aðspurður um stíl lagsins.
Hægt er að horfa á tónlistarmyndband við lagið hér fyrir neðan: