Söngkonan Guðný María Arnþórsdóttir biður fólk um hjálp en stofnaður hefur verið tiktok-reikningur í hennar nafni.
Gleðigjafinn söngelski Guðný María segir farir sínar ekki sléttar en nýlega var stofnaður reikningur á tiktok í hennar nafni og er notast við ljósmynd af henni í prófílmyndinni. En Guðný María er ekki á tiktok og því um óprúttinn aðila að ræða.
@gudnymaria1
Í samali við Mannlíf segir Guðný María að „eitthvað yndislegt fólk“ standi á bak við reikninginn „og rífur kjaft og drullar yfir fólk í nafni minnar persónu. Guðný vill hvetja fólk til þess að tilkynna reikninginn svo tiktok taki hann út en sjálf á hún ekki tiktok reikning, „ég yrði mjög þakklát ef fólk reportar þetta“.
„Ég ríf bara kjaft í lögum mínu eins og þið heyrið, það er ekki persónulegt,“ sagði Guðný María og skellihló. Átti hún þá við nýjasta smellinn hennar, Dannadans sem má sjá hér að neðan.