- Auglýsing -
Fyrrum skólameistari Menntaskólans á Akureyri, Jón Már Héðinsson, fór holu í höggi á golfvellinum á Villaitana á Spáni, fyrr í vikunni. Í kjölfarið lét hann gott af sér leiða.
Á Facebook-síðu Golfskálans segir frá málinu: „Síðasta haust vorum við með ótrúlegt hlutfall hvað varðar holur í höggi meðal okkar farþega á Spáni. Þetta vor fer ágætlega af stað. Í vikunni fóru tveir meistarar holu í höggi hjá okkur. Þorsteinn Jóhannsson afrekaði það á 12. braut á Los Moriscos og svo kom hann Jón Már Héðinsson í kjölfarið og setti beint í holu á 3. braut á Levente vellinum á Villaitana.“
Þá kemur fram á síðunni að Jón hafi aldeilis valið réttu holuna því þar hafi verið hægt að leggja undir 10 evrur til styrktar krabbameinsrannsóknum. Það hafi Jón að sjálfsögðu gert. Með því að fara svo holu í höggi vann hann sér inn heilar þúsund evrur eða um 150.000 krónur.
„Þessi höfðingi rétti svo til baka helming upphæðarinnar til styrktar áframhadandi rannsóknum. Vel gert Jón. Við óskum Þorsteini og Jóni til hamingju,“ segir á Facebook-síðu Golfskálans.