Kamilla Einarsdóttir rithöfundur og Sigurður Orri Kristjánsson, fréttamaður á Stöð 2, Vísi og Bylgjunni, eru hætt saman eftir stutt samband.
Hinn kaldhæðni og hæfileikaríki rithöfundur, Kamilla Einarsdóttir skrifaði spaugilega færslu á Twitter í dag þar sem hún lýsir því hvernig hún takist á við sambandsslitin við Sigurð Orra en sagt var frá sambandi þeirra í síðasta mánuði.
„Ég er búin að lita á mér hárið bleikt, panta og afpanta tíma í tattú og overshare-a alls konar um tilfinningar mínar við þrjár ókunnugar manneskjur (reyndi samt alveg að vera fyndin á meðan til að milda þetta) Nei bara svona ef þið voruð að spá hvernig ég er að díla við breiköppið.“
Ýmsir skrifa athugasemd við færsluna en skáldkonan Didda Jónsdóttir á sigurinn en hún birtir fallegt ljóð:
„Lífið er þraut og ástin er víma
fegurðin fölnar og auðna þín þverr
allt kostar sitt og nautn verður glíma
því ekkert fer eins og þú óskar þér.“