„Skoðaðu frábært verð á flugi og tilboð í fríið: Bókaðu heimsókn að náttúruperlum Íslands og strikaðu „virkt eldgos“ af listanum,“ skrifar flugfélagið Icelandair í færslu á Facebook síðu sinni.
Flugfélagið hefur ákveðið að herja á Bandaríkjamarkað og auglýsir hvorki meira né minna en á stóru auglýsingaskilti á Times Square, einum fjölmennasta ferðamannastað New York borgar.
Í auglýsingunni er birt myndband af eldgosinu í Geldingadal með yfirskriftinni:
„Eldgosið á Íslandi er bara rétt handan við hornið. Það bíður þín þegar þú ert tilbúin(n).“
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, nýsköpunar- og ferðamálaráðherra, sagði á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar í dag að mikil tækifæri séu í uppsiglingu fyrir ferðaþjónustuna í sumar.
„Ég lít svo á að ferðaþjónustan geti athafnað sig innan þesssarra reglna og við munum geta tekið við fólki. Að stórum hluta verður það bólusett fólk.“
Hún sagði jafn framt: „Bandaríkin eru að taka við sér. Ferðaviljinn er meiri og það hangir auðvitað saman við bólusetningar.“
Augljóst er á auglýsingu Icelandair á flugfélagið ætlar ekki að láta tækifærið á Ameríkumarkaði fram hjá sér fara.