„Fór í Kínabúð hérna í Zambíu í dag og fann þessar húfur þar. Það væri nú gaman ef einhver þekkti söguna á bakvið hvers vegna þær enduðu hér í Afríku,“ segir Björn Gunnar Rafnsson í Facebook færslu en hann rakst á húfur merktar íslensku íþróttafélögunum KA á Akureyri og Sindra á Hornafirði í búð þar í landi.
Færslan vakti kátínu meðal fólks og gladdist Rakel Ýr yfir að sitt félag skyldi hafa ratað til til Afríku: „Jessss!!! Áfram Sindri!! Mitt félag!!“
Guðmundur bað Björn Gunnar að kippa með sér húfu ef hann fyndi eina frá KR. Magnea var með hugsanlega skýringu á húfunum. „Fótboltafélögin gefa oft gamla búninga og dót til Afríku. Taktu mynd ef þú sérð einhvern Gróttumann merktan KK.“
Björn Gunnar svaraði Magneu og sagði húfurnar vera glænýjar.
„Já ok!“, skrifar Magnea. „Þetta er spes!“
„Þá eru kannski einhverjir einlægir aðdáendur íslenska boltans þarna“
Enn er því allt á huldu hvernig alíslenskar húfur íslenskra knattspyrnuliða lentu í verslun suður í Sambíu.