Ríkisskattstjóri fær mánuð til að hætta birtingu heildarhluthafalista félaga.
Þetta kemur fram í ákvörðun Persónuverndar.
En um síðustu áramót hóf ríkisskattstjóri að birta upplýsingar um heildarhluthafalista á opnum vef Skattsins.
Óskaði ríkisskattstjóri í kjölfarið eftir áliti Persónuverndar á þessari vinnslu persónurekjanlegra gagna og komst Persónuvernd að þeirri niðurstöðu að birtingin væri ólögmæt.
Hún segir einnig að betra hefði verið að ganga úr skugga um að birtingin væri lögmæt áður en hún hófst.
Í ákvörðun Persónuverndar segir meðal annars:
„Persónuvernd komst að þeirri niðurstöðu að 4. mgr. 109. gr. laga um ársreikninga væri ekki nægilega skýrt orðuð til að fela í sér fullnægjandi lagastoð fyrir vinnslunni og að birting upplýsinga um hlutafjáreign einstaklinga samrýmist þannig ekki persónuverndarlögum.“