Föstudagur 26. apríl, 2024
5.1 C
Reykjavik

Elín í Sælukoti svarar gagnrýni: „Nunna nú orðin hryðjuverkamaður í fjölmiðlum og stóreignakona“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Elín Halldórsdóttir er leikskólastjóri Sælukots, og ritar grein sem ber yfirskriftina:

Vegna um­fjöllunar um leik­skólann Sælu­kot.

„Ég undirrituð hef þurft að lesa greinar og hlusta á viðtöl í fjölmiðlum síðustu 2 daga þar sem fram koma ótrúlegustu rangfærslur um skólastarf leikskólans Sælukots sem á að baki 46 ára starf,“ segir Elín og bætir við:

„Á sama tíma og leikskólastarf í landinu á undir högg að sækja þar sem ekki er borin nógu mikil virðing fyrir starfinu og laun yfirleitt undir eða í meðallagi miðað við aðrar greinar blása fjölmiðlar til stórsóknar á lítinn einkarekinn leikskóla undir yfirskini aðsendrar greinar frá 3 fyrrverandi starfsmönnum og einu fyrrverandi foreldri.

Ég hef síðustu 2 daga þurft að taka símtöl þar sem foreldrar fyrrum leikskólabarna í Sælukoti harma þessa hræðilegu umfjöllun út af því að hún samræmist ekki þeirra reynslu en einnig hef ég þurft að svara áhyggjufullum foreldrum.“

Elín bendir á að það sé í sjálfu sér alls ekki slæmt að fá gagnrýni, uppbyggilega gagnrýni. En hún vill meina að sú umfjöllun og sú gagnrýni sem Sælukot hefur fengið í fjölmiðlum sé ekki uppbyggileg á neinn hátt.

- Auglýsing -

„Það er aftur á móti annað mál að fá bylgju af uppspuna og ósannindum yfir sig. Ég hef þurft að hlusta á það í útvarpinu að enginn faglegur leikskólastjóri starfi við skólann. Að skólinn tengist hryðjuverkasamtökum, að skólavistin jafnist á við fangabúðir svo eitthvað sé nefnt. Hér er vegið að litlum skóla með alþjóðlega sögu og alþjóðlega nemendur og starfsfólk með ótrúlegum hætti.

Rekstrarstjóri leikskólans sem er nunna er nú orðin hryðjuverkamaður í íslenskum fjölmiðlum og stóreignakona.“

Elín segir einnig um umfjöllunina nýverið að „börnin eru orðin að þrælum og starfsfólkið allt er ófaglegt og örugglega með hor í nös. Vegið er að starfsumhverfi lítilla barna sem eðlilega geta hvorki staðfest né upplýst um það sem fleygt er í fjölmiðla og frænkur og frændur setja heilu barnafjölskyldurnar í geðshræringu eftir stóryrtar tröllasögur þekktra fjölmiðla.“

- Auglýsing -

Hún er einnig á því máli að „vafalítið kemur þetta sér býsna vel fyrir borgaryfirvöld sem standa í strangri baráttu við foreldra ungra barna sem hvergi fá leikskólapláss að beina nú allri athyglinni á einn lítinn ómerkilegan leikskóla með „útlenskum” börnum, Þá geta þau bara haldið áfram að nota borgarsjóð í pálmatré og bragga í friði.“

Elín segir ekkert óeðlilegt í gangi í koti sælunnar.

„Það mál sem fjallað hefur verið mikið um í miðlunum og tengdist áreiti og nefnt er í greininni umtöluðu fór í gegnum eðlilegt ferli í kerfinu lögreglu, barnavernd og eftirlitsaðila frá borginni og var afgreitt án ákæru. Uppspretta alls þessa máls er aðsend grein í Vísi, full af rangfærslum. Þess ber að geta að 3 af þeim 4 sem rita greinina eru fyrrverandi starfsmenn leikskólans. Einn þeirra lýsti brottrekstri sínum frá störfum vel í Bylgjuviðtali nýverið þar sem hann kvaðst ekki hafa staðið sig. Þar með er nokkuð ljóst að hér hafa siðareglur starfsfólks skóla verið margbrotnar á ótrúlegan hátt af þessum „fullkomlega faglegu” greinarriturum.“

Að lokum segir Elín að „sem Leikskólastjóri Sælukots bið ég alla þá sem upphafa stóryrði eða rita eða tala í fjölmiðlum um leikskólann Sælukot og starfsumhverfi lítilla barna að sýna litlum börnum og þeirra starfsumhverfi tilhlýðilega virðingu og kynna sér málin áður en farið er í skotgrafirnar. Ást og friður.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -