Sunnudagur 5. maí, 2024
4.8 C
Reykjavik

Frelsið var tekið af Stefaníu: „Manneskjan sem ég var á þeim tíma hvarf“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Stefanía Hrund Guðmundsdóttir birti dag öflugan pistil um kynferðisbrot.

Lögfræðineminn Stefanía Hrund gerir kynferðisafbrot að umræðuefni í pistli sem kom út fyrr í dag. Þar ræðir hún meðal annars um eigin upplifun á kynferðisbroti sem hún varð fyrir aðeins 15 ára gömul. Hún upplifði það sem endalok lífsins en biður fólk sem deilir hennar reynslu að segja frá og rödd þeirra skipti máli.

„Samkvæmt nýrri skýrslu ríkislögreglustjóra eru 42% brotaþola í tilkynntum kynferðisbrotum undir 18 ára aldri. Ég er hluti af þessari tölfræði.

Október er genginn í garð, fullur af tilfinningum og minningum eins og seinustu tíu ár hjá mér. Fyrir tíu árum síðan var ég 15 ára menntaskólastelpa að njóta lífsins á nýjum stað þegar það var brotið á mér af samnemanda mínum og við tók þriggja ára kæruferli. Í dag er ég 26 ára, með BA gráðu í fjölmiðlafræði og sest á skólabekk aftur í þetta sinn að læra lögfræði, eitthvað sem mig grunaði ekki fyrir 10 árum að ég myndi geta.

Fyrir tíu árum síðan var frelsið mitt tekið af mér um stund, manneskjan sem ég var á þeim tíma hvarf og á einu augnabliki varð ég einhver allt önnur. Fyrir 10 árum síðan hélt ég einfaldlega að líf mitt væri búið, ég hélt ég myndi aldrei fá röddina mína aftur og ég hélt að mér myndi aldrei líða eðlilega aftur,“ segir Stefanía í pistlinum sem birtist á Vísi.

„Elsku þolandi! Ef þú ert að lesa þetta og ert í vafa hvort þú eigir að segja frá eða ekki, þá hvet ég þig til þess að segja frá. Þú þarft ekki að kæra ef þú treystir þér ekki til þess, en segðu frá, finndu einstakling sem þú treystir og deildu þessu með viðkomandi – röddin þín skiptir máli og þú ert ekki eitt að berjast í gegnum þetta. Skömmin er ekki þín að bera!“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -