Föstudagur 3. maí, 2024
6.6 C
Reykjavik

Geir Ólafs söng fyrir Vladimir Pútín: „Mér var hætt að lítast á blikuna“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Geir Ólafsson söngvari bauð sig nýlega fram í sveitastjórn fyrir Miðflokkinn, eftir símtal sem hann hélt að væri símaat. Geir er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar og segir í þættinum meðal annars frá þessarri undarlegu atburðarrás:

„Ég fæ reglulega alls konar símtöl frá alls konar fólki og ég svara oftast. Svo er það einn daginn að það er hringt í mig og ég beðinn um að vera á lista fyrir Miðflokkinn í síðustu kosningum. Ég hugsaði með mér að þetta væri enn eitt grínið og ákvað að taka bara þátt og sagðist vera klár í þetta og hlakka til. Svo pældi ég ekkert meira í þessu og hélt að þetta hefði verið símaat. En svo fæ ég símtal skömmu fyrir kosningar þar sem ég er beðinn um að skrifa undir einhver plögg og þá hugsaði ég með mér að ég gæti ekki bakkað út úr þessu. Ég var settur í annað sætið á listann og það var bara mjög gaman að taka þátt í þessu. En almennt er ég ekki hrifinn af hjarðarhegðun og flokkapólitík og mér finnst að það ætti að gefa Íslendingum kost á að kjósa fólk með því að hafa persónukjör.“

Geir hefur glímt við kvíða síðan hann var barn og segir frá þeirri baráttu í þættinum:

„Ég er búinn að vera mikill kvíðasjúklingur síðan ég man eftir mér og auðvitað hefur það háð mér mikið í gegnum tíðina. Ég man eftir fyrstu kvíðaköstunum mínum þegar ég var bara 6 ára og hefði líklega átt að fá alvöru aðstoð þá, sem ég fékk ekki. En það sem er kannski erfiðast núna er félagsfælnin. Ég fæ oft vanlíðan og einkenni þegar ég er í margmenni og þarf að passa mig þegar ég kem fram og syng. Þá er ég ekki of nálægt fólkinu og undirbý mig vel og er yfirleitt með einhverjum sem ég treysti. En almennt er ég ekki mikið í margmenni og þegar ég fer í bíó verð ég að vera í sæti nálægt útganginum svo dæmi sé tekið. Það verður auðvitað lýjandi að glíma við svona lagað í langan tíma. En ég er þakklátur fyrir það hvar ég er staddur í dag og hef lært að lifa með þessu.“

Í þættinum fer Geir einnig yfir eftirminnilega atburði frá ferlinum. Meðal annars þegar hann söng fyrir Vladimir Pútín og fleiri valdamenn í höll í Moskvu:

„Maður labbar ekkert bara í gegnum venjulega hurð þegar maður hittir svona menn. Ég var leiddur af öryggisvörðum í gegnum einar dyr sem læstust síðan á eftir mér og svo aðrar dyr sem læstust líka og svo koll af kolli. Mér var hætt að lítast á blikuna þegar ég var kominn í gegnum helminginn af dyrunum og kominn með innilokunarkennd á háu stigi. Þegar ég var svo mættur fyrir framan Putín og hina valdamennina voru þeir allir frekar þungir á brún eins og Rússar eru oft og ég var orðinn hálfsmeykur. En svo byrjuðu þeir að brosa og léttast þegar ég byrjaði að syngja ,,My Way” og það var mikill léttir. Eftir á að hyggja var þetta mjög skemmtileg reynsla og eins og svo margt í mínu lífi hálf óraunverulegt. En ég er gríðarlega þakklátur fyrir það hvað ég hef fengið að koma fram víða og fyrir marga.“

- Auglýsing -

Aðrir eftirminnilegir tónleikar hjá Geir áttu sér stað í Bógóta í Kólombíu, þar sem hann endaði í sjúkrabíl:

„Ég var bara nýkominn til Bógota þegar tónleikarnir áttu sér stað og hafði ekki undirbúið líkamann nægilega vel. Þetta var stór kvikmyndahátíð og mikið tækifæri fyrir mig, en borgin er vel á þriðja þúsund metra yfir sjávarmáli og fann það fljótt eftir að ég byrjaði að syngja að eitthvað var að. Ég varð andstuttur, fékk höfuðverk og sjóntruflanir og svo versnaði það bara og vernsaði þar til ég var sendur á spítala með háfjallaveiki. Ég þekki kvíða vel, en þetta var allt öðruvísi og eiginlega bara ömurleg vanlíðan. Það er líklega ekki það sniðugasta sem maður gerir þegar líkaminn er í hæðaaðlögun að fara upp á háa C-ið og það endaði bara í sjúkrabíl. En reynslan sem ég fékk af heilbrigðiskerfinu í Kólombíu var frábær.“

Geir segist gera sitt besta alla daga til að koma vel fram við náungann og finnst á köflum stemmningin á Íslandi vera full grimm og neikvæð:

- Auglýsing -

„Það er alltaf einhver að gagnrýna einhvern og svo kemur einhver annar og gagnrýnir þann fyrir að vera að gagnrýna og þetta endar bara eins og hver önnur hringavitleysa. Það leiðir mann ekki neitt að vera stanslaust með neikvæðar skoðanir á öðru fólki. Ég held að eitt það besta sem ég hef lært er að verða betri í að halda kjafti. Það lagar mjög mörg vandamál að vera ekki alltaf með skoðanir á öllu saman og læra að anda í magann áður en maður hefur eitthvað mjög neikvætt til málanna að leggja. Skoðanir og gagnrýni kallar mjög oft bara á fleiri skoðanir og meiri gagnrýni. Þetta er fámennt land sem við búum í og við hljótum að geta gert betur í að koma vel fram við hvort annað og róað okkur í að vera að segja eitthvað neikvætt um náungann.“

Geir segist með árunum hafa lært að tileikna sér auðmýkt og þakklæti:

„Þegar maður eldist verður maður að nota skynsemina. Maður hefur ekkert leyfi til að setja sig á háan hest og þykjast betri en annað fólk. Besta leiðin til að ná til fólks er að vera hógvær, koma vel fram við fólk og draga úr dómhörku. Það eru allir að gera sitt besta við misjafnar aðstæður. Maður má ekki sofna á verðinum og láta hrokann koma aftan að sér. Ég minni mig alla daga á að vera þakklátur fyrir konuna mína og dóttur mína. Ég væri ekki þar sem ég er í dag ef ég hefði ekki kynnst konunnni minni og hún er það besta sem hefur komið fyrir mig. Ég er líka gríðarlega þakklátur fyrir tækifærin sem ég fæ í tónlist og fjölskylduna mína og reyni að jarðtengja mig alla daga og minna mig á að vera auðmjúkur og þakklátur.“

https://www.youtube.com/watch?v=B4zqRlqqYEw

Þáttinn með Geir og alla aðra Podcastþætti Sölva Tryggvasonar má nálgast inni á: https://solvitryggva.is

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -