Sunnudagur 5. maí, 2024
2.8 C
Reykjavik

Klara Bjartmarz hættir hjá KSÍ eftir 30 ára starf: „Í gegnum súrt og sætt“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

KSÍ greindi frá því í tilkynningu nú fyrir stuttu að Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, hafi ákveðið að láta af störfum eftir 30 ára starf hjá sambandinu. Klara hefur notið mikillar virðingar fyrir gott starf á þessum 30 árum en hefur mátt þola mikla gagnrýni undanfarið ár og einkenndist árið 2023 af agavandamálum og dómgreindarleysi af hálfu KSÍ að mati sumra.

Hægt er að lesa tilkynningu KSÍ hér fyrir neðan:

Klara Bjartmarz framkvæmdastjóri KSÍ lætur af störfum að eigin frumkvæði í lok febrúarmánaðar og hverfur til annarra starfa strax þann 1. mars, hjá Landhelgisgæslu Íslands. Ráðning nýs framkvæmdastjóra er verkefni sem bíður næsta formanns KSÍ og stjórnar að loknu ársþingi KSÍ sem fer fram þann 24. febrúar næstkomandi.

Klara Bjartmarz:
„Mér er efst í huga þakklæti á þessum tímamótum, þakklæti fyrir þau forréttindi að fá að vinna við áhugamál mitt í 30 ár. Það er ekki sjálfgefið. Ég þakka samstarfsfólki mínu hjá KSÍ fyrir þolinmæðina, vináttu og stuðning sem og öllum þeim aðilum í knattspyrnuhreyfingunni sem ég hef átt samleið með öll þessi ár. Takk fyrir mig og sjáumst á vellinum.“

Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ:
„Mig langar að þakka Klöru fyrir allt sem hún hefur gert fyrir íslenska knattspyrnu. Hún er að hætta hjá KSÍ á 30 ára starfsafmæli sínu sem er núna í janúar, hefur starfað af dugnaði, samviskusemi og heilindum öll þessi ár, í gegnum súrt og sætt, og á miklar þakkir skildar. Þekking hennar og reynsla er ómetanleg og hún hefur reynst mér afar vel á þeim tíma sem ég hef verið formaður KSÍ. Takk fyrir allt, Klara.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -