Fimmtudagur 2. maí, 2024
6.8 C
Reykjavik

Þingmaður Pírata handtekinn á Kíkí bar: „Þetta var óþarf­lega niður­lægj­andi“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Þingmaður Pírata, Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, var handtekin af lögreglu á föstudaginn, á skemmtistaðnum Kíkí Queer bar. Staðfesti hún þetta við fréttastofu RÚV. Segir hún viðbrögð dyravarðanna hafa verið með öllu tilhæfulaus.

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir

Fyrr í dag greindi Mbl.is frá málinu en þar sagði Arndís að ástæða handtökunnar hafi verið sú að hún hafi dvalið of lengi inni á salerni skemmtistaðarins. Dyraverðirnir hafi ætlað að henda henni út af þessum sökum og í framhaldinu hafi þeir snúið hana niður.

Segir hún í samtali við Mbl.is að dyraverðir Kíki Queer bar hafi óskað eftir aðstoð frá lögreglu sem hafi fjarlægt Arndísi og síðan skutlað henni heim.

Þingkonan býst ekki við að henni verði birt ákæra og telur líklegt að engir eftirmálar verði af atvikinu. Segist hún fagna viðbrögðum lögreglu sem hafi brugðist hárrétt við í málinu en tekur fram að viðbrögðin við því sem gerðist hafi verið með öllu tilefnislaust.

„Dyra­verðir óskuðu eft­ir aðstoð. Dyra­verðir voru bún­ir að snúa mig niður vegna þess að það átti að henda mér út fyr­ir að hafa verið of lengi á sal­ern­inu, það er bara svo­leiðis. Ég er þingmaður og ég hugsaði með mér: „Það er kannski ekki al­veg ástæða til að bera mann hér út“. Þetta var óþarf­lega niður­lægj­andi og óþarf­lega mik­il harka af þeirra hálfu [dyra­varðanna] og þar streit­ist ég á móti og þetta kannski vind­ur upp á sig og þau óska eft­ir aðstoð lög­reglu við að koma mér út.“

Í samtali við mbl.is segist hún bera fyllstu virðingu fyrir störfum öryggisgæslufólks, starfið sé snúið og erfitt að bera ábyrgð á stórum hópum sem kannski sé ekki alveg upp á sitt besta.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -