Föstudagur 3. maí, 2024
6.8 C
Reykjavik

Kristján var hraustur en COVID braut hann niður: „Minnti mig alltof mikið á martraðirnar“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Kristján Gunnarsson, fjármálastjóri Reykjavíkurborgar, lýsir síðustu sex mánuðum sem hreini martröð en hann sýktist þá af COVID veirunni alræmdu. Rætt var við Kristján í Kastljósi fyrir nokkrum mánuðum en mál hans sýnir glögglega hvílíkt skaðræði veiran getur verið. Hann var við góða heilsu þegar hann veiktist en hefur síðustu mánuði upplifað skelfileg veikindi. Hann lýsir þeim í færslu á Facebook sem hefur vakið athygli.

„Um næstu mánaðamót eru sex mánuðir síðan ég veiktist af Covid19 veirunni. – Ég var með mikinn hita (40 gráður) í viku en ekki önnur Covideinkenni. Ég fór tvisvar í skimun á þessum tíma og bæði sýnin voru neikvæð. Ég var tvisvar fluttur á bráðadeild Landspítalans. Í seinna skiptið var ég lagður inn á gjörgæslu með mikla öndunarbilun og súrefnisskort og í framhaldi af því settur í öndunarvél í tvær vikur til að styðja við lungnastarfssemina. Samtals var ég á gjörgæslu í 16 daga – bæði í Fossvogi og við Hringbraut. Í öndunarvélinni var mér snúið tvisvar á grúfu í 17 tíma hvort skiptið og lá þannig á maganum (og enninu) í rúminu. Grúfulega hjálpar til við að auka upptöku súrefnis í lungunum og styður þannig við súrefnisbúskap líkamans,“ segir Kristján.

Því næst var hann setur á verklyf sem vekur upp slæmar tengingar og ekki skánaða það þegar hann var settur í öndunarvél. „Ég fékk sterk verkjalyf (fenantyl, sem er opíóðalyf og dregur gjarnan þá sem „anda sjálfir“ til dauða) og sterk svæfingarlyf. Auk þess fékk ég lyf til að styðja við blóðrás líkamans.  Í öndunarvélinni upplifði ég hræðslu, kvíða, óráð, ruglingslegar minningar og martraðir. Mér fannst ég vera í haldi hjá hryðjuverkamönnum og komst hvergi og upplifði að mínir nánustu vissu ekki hvar ég væri. Þetta er algengt hjá sjúklingum í þessari stöðu og er afleiðing hinna bráðu og alvarlegu veikinda og meðferðar á gjörgæsludeild,“segir Kristján.

Brostu í gegnum grímurnar

Þessu var þó hvergi nærri lokið hjá honum. „Af gjörgæslu fór ég í viku einangrun á lungnadeild Landspítalans og loks í tveggja vikna endurhæfingu á Reykjalund. Eðlilega var ég grútmáttlaus og þrek og þol afar lítið. Ég var útskrifaður af lungnadeild eftir þrjár neikvæðar skimanir sem staðfestu að ég var laus við smit og öll líffæri önnur en lungu voru heil eftir gjörgæsluvistina. Lungnastarfssemi tók tíma að lagast, súrefnismettun var ófullnægjandi og hlutfall rauðu og hvítu blóðkornanna í ójafnvægi,“ segir Kristján.

Stuttu síðar var hann orðinn fær um að klæða sig sjálfur. „Á Reykjalundi var ég í tvær vikur í meðferð. Ég var aðeins sprækari á Reykjalundi en samt svo máttlaus að það var meiriháttar mál að fara í sturtu og skipta um föt. Það var reyndar þannig að þá daga sem ég fór í sturtu þá var ákveðið að ég færi ekki í sjúkraþjálfun til að ofkeyra mig ekki. Einn daginn fór ég í æfingagallabuxur öfugar eftir sturtuferðina en hafði ekki kraft til að laga það – og hjúkrunarfræðingarnir brostu gegnum grímurnar að hollningunni á mér. Eftir tvær vikur var ég orðinn fær að sjá um mig sjálfur og því útskrifaður af Reykjalundi,“ segir Kristján.

Minnti á Mysery

Hann segir þetta allt saman hafa minnt sig á fræga hryllingsmynd eftir Stephen King. „Þegar heim kom sá ég sjálfur um endurhæfingu með gönguferðum, hjólreiðum og sundi auk þrekæfinga í samráði við sjúkraþjálfara á Reykjalundi. Verkefnið var að æfa sig og hvíla sig. Mikilvægast var að fara ekki framúr sér í æfingum og hlusta á líkamann og hvíla sig vel. Ég var svolítið viðkvæmur andlega, átti erfitt með að horfa á daglegu blaðamannafundina um tölfræði um fjölda smitaðra, fjölda á spítala, fjölda á gjörgæslu, fjölda í öndunarvél og ekki síst fjölda látinna. Þá gat ég ómögulega horft á myndina Misery með Kathy Bates og James Caan helgina eftir að ég kom heim. Hún minnti mig alltof mikið á martraðirnar á gjörgæslunni. Eftirá eru þessar martraðir ákaflega spaugilegar en þær voru ömurlegar meðan á stóð. Þær eru trúlega gott efni í grátbroslega smásögu,“ segir Kristján.

- Auglýsing -

Dauðans alvara

Hann hefur að sjálfsögðu verið mikið frá vinnu en er þar heppnari en margir. „Í sex mánuði hef ég verið frá vinnu. Þumalputtaregla varðandi afleiðingar veru á gjörgæslu og í öndunarvél er tveggja vikna veikindafrí fyrir hvern dag hvern dag á gjörgæslu, eða í mínu tilfelli sjö til átta mánuðir. Ég er svo heppinn að hafa notið mikils skilnings hjá sviðsstjóra og samstarfsfólki hjá Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborg og hef fengið „friðhelgi“ hvað samskipti við vinnustaðinn varðar,“ segir Kristján.

Að lokum biðlar hann til fólks að hafa í huga að COVID sé ekkert grín. „Reynslan þessara sex mánaða hefur kennt mér mikið. Að fá Covid 19 getur verið dauðans alvara. Að lenda á gjörgæslu og öndunarvél er lífsreynsla sem ég óska engum að lenda í. Fyrir ættingja og vini voru það tvær vikur milli vonar og ótta. Einangrun á gjörgæslu kemur í veg fyrir að nánustu ættingjar og vinir geti heimsótt mann og séð ástandið á manni. Þar verður ímyndunarafl þeirra að duga – sem er ekki gott. Margir vina minna kviðu því að sjá nýjustu tölfræðina á daglegum blaðamannafundum. Að sjá nánast ekki andlit í sex vikur er ekki upplífgandi. Að geta hvorki farið á salerni eða í sturtu í 3 vikur er dapurlegt. Að geta ekki hitt og faðmað sína nánustu í sex vikur er óhollt.“

 

- Auglýsing -

 

 

 

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -