Miðvikudagur 8. maí, 2024
5.8 C
Reykjavik

Mæðgur segjast fangar á Foss-hótel: „Og svo streymdu niður tár, tár og tár“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, baráttukona gegn sóttvarnaraðgerðum, birtir á bloggi sínu frásögn Brönku Aleksandarsdóttir sem er nú í sóttkví á Foss hótel. Branka segir ástandið skelfilegt og þær mæðgur séu miður sín. Þær voru að koma úr jarðaför móður Brönku í Serbíu og voru skikkaðar í sóttkví við heimkomu.

„Þann 26. mars fór ég til Serbíu með dóttur minni til að jarða móður mína. Ég þurfti að fara, burt séð frá Covid. Ég er eina barnið hennar. Þegar við fórum utan höfðu núverandi reglur ekki tekið gildi. Allt sem þurfti til að komast til Serbíu var neikvætt PCR próf, engar takmarkanir, sóttkví eða einangrun. Auðvitað eru einhverjar reglur þar líka og útförin fór fram með nánustu fjölskyldu okkar,“ segir Branka.

Þær mæðgur fóru í gegnum Pólland á leið heim til Íslands. „Eftir fimm erfiða daga í Serbíu komum við heim til Íslands, eða það héldum við. Við gátum varla beðið eftir að hvíla okkur, bæði andlega og líkamlega. Ég bjóst við sóttkví heima og var tilbúin í það. Heimferðin frá Serbíu var í gegnum Pólland. Til að koma til baka þurftum við að fara í annað PCR próf, sem var neikvætt. Þegar við lentum á Keflavíkurflugvelli var fyrirkomulagið allt annað en vanalegt. Við fórum í annað PCR test og síðan í vegabréfaeftirlitið, þar sem verðirnir settu rauðan pappír í vegabréfið okkar. Eftir stutta yfirheyrslu og sögðu okkur að sýna lögreglunni það. Ég var svolítið hissa á því hvað lögreglan ætti að gera,“ segir Branka.

Branka segir að þær mæðgur hafi báðar verið í áfalli. „Við fórum að útganginum og það var sjokk; örvar, rými girt með af með segulböndum, lögregla og starfsmenn klæddir Covid – búnaði. Þeir vísuðu okkur hvert við ættum að fara, leiðin lá beint að rútunni. Þegar við fórum út hélt ég að þetta væri rúta sem færi á  BSÍ en það var ekki þannig. Alla leiðina keyrðu tveir lögreglumenn á mótorhjólum á undan okkur. Þeir keyrðu okkur að Foss hótelinu. Mér leið ekki vel þegar ég sá það. Fyrir framan hótelið voru held ég hvorki meira né minna en tíu lögreglumenn og margir starfsmenn sem fylgdu okkur inn á hótelið. Bæði dóttir mín og ég vorum í áfalli. Hvað er að gerast? Eins og í bíómynd, eins og við værum stórglæpamenn. Í lyftunni máttum við ekki ýta sjálfar á hnappinn fyrir 9. hæðina.  Þeir gerðu það fyrir okkur. Ég var skjálfandi og trúði þessu ekki. Og dyrunum að herberginu okkar var lokað um klukkan 2 um nóttina,“ lýsir Branka.

Fyrstu viðbrögð þeirra voru að þetta hljóti að vera einhver mistök. „Við stóðum þarna og litum á hvor aðra, lögðum ekki töskurnar niður strax. ,,Þetta hljóta að vera einhver mistök“ hugsaði ég. Við trúðum þessu ekki. Og svo streymdu niður tár, tár og tár allt til morguns. Við fórum á fætur um átta leytið. Okkur var kalt. Við vorum ekki með hlý föt, við fórum til Serbíu með léttan fatnað. Við vorum ekki einu sinni svangar. Við vorum meðvitaðar um að vera lokaðar inni.“

Hún segir tilfinningarnar hrannast upp á hótelinu. „ Við fengum neikvæða niðurstöðu úr PCR prófunum. Ég fann númerið hjá Rauða krossinn á netinu. Ég hringdi í þá og bað um leyfi til að fara heim. Við búum bara tvær saman heima, ég og dóttir mín og erum þar af leiðandi ekki að setja aðra í hættu. Starfsmaður Rauða Krossins segir mér að hringja í hótelstarfsmennina. Ég hringdi en svarið var, nei! Eftir smá tíma hringi ég aftur til að spyrja hvort við mættu fara aðeins út til að fá ferskt loft og aftur er svarið, nei!. Okkur líður hræðilega. Lokaðar inni, enginn réttur til að fá að fara heim og enginn réttur til að anda að sér fersku lofti. Tilfinningarnar hrannast upp, þær tilfinningar sem við komum með okkur eftir jarðarför móður okkar og þær sem við erum að upplifa núna. Dóttir mín vill ekki borða, ég reyni að vera sterk og ég reyni að sýna henni þann styrk sem hún þar, en ég er máttlaus.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -