Þriðjudagur 19. mars, 2024
1.8 C
Reykjavik

Vítalía og Arnar kærð fyrir tilraun til fjárkúgunar – „Þið hafið ekki gert fucking neitt“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Víta­lía Lazareva og Arnar Grant hafa verð kærð til héraðs­sak­sóknara. Fréttablaðið greindi frá þessu í morgun en eru kærendur þeir Ari Edwald, Hregg­viður Jóns­son og Þórður Már Jóhannes­son. Kæran er fyrir tilraun til fjárkúgunar, hótanir og brot gegn friðhelgi einkalífs. Má rekja málið til sumarbústaðaferðarinnar sem Vítlía sagði frá í hlaðvarpsþættinum Eigin konur í janúar síðastliðnum.

Þá er greint frá því í dag að Vítalía hafi komið í bústaðinn eftir miðnætti en þar hafi allir verið orðnir ölvaðir. Mennirnir hafi  ekki heyrt frá henni fyrr en ári eftir atvikið þar sem hún sagðist ætla að leita réttar síns eftir atvik umrætt kvöld. Kæran á hendur þeim Vítalíu og Arnari er byggð á því að þau hafi sameiginlega staðið að atburðarás sem hófst seint á síðasta ári. Þá mun Vítalía hafa hringt í þremenningana og tjáð Hreggviði meðal annars að rússneskir lögfræðingar væru komnir með málið. „Þið fenguð heilan mánuð en þið hafið ekki gert fucking neitt,“ er meðal annars haft eftir Vítalíu. Skömmu síðar fóru að berast bréf til þeirra. Fréttin verður uppfærð.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -