Þriðjudagur 19. mars, 2024
0.8 C
Reykjavik

Ísold og Bong Joon-ho deila verðlaunum fyrir bestu leikstjórnina

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ísold Uggadóttir og Halldóra Geirharðsdóttir hlutu Chlotrudis-verðlaun í vikunni. Verðlaunahátíðin átti að fara fram í þessari viku er hátíðinni var aflýst vegna útbreiðslu COVID-19. Sigurvegarar hafa þó verið kynntir í tilkynningu á vefsíðu Chlotrudis Society for Independent Film.

Í tilkynningu um hátíðina segir að suðurkóreska kvikmyndin Parasite og Íslenskar konur standi uppi sem sigurvegarar.

Íslensku myndirnar Andið eðlilega og Kona fer í stríð fengu samanlagt þrjú verðlaun.

Kvikmyndin Kona fer í stríð hlaut tvö verðlaun, annars vegar fyrir bestu tónlistina og hins vegar í flokki bestu leikkonu en Halldóra Geirharðsdóttir fór með aðalhlutverk myndarinnar.

Tveir hlutu verðlaunin í flokki besta leikstjóra, það eru Ísold Uggadóttir fyrir leikstjórn Andið eðlilega og Bong Joonho fyrir leikstjórn Parasite.

Kvikmyndin Parasite hlaut fjögur verðlaun á hátíðinni, meðal annars í flokknum besta myndin.

- Auglýsing -

Þetta er í 26 sinn sem Chlotrudis-verðlaunin eru veitt.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -