Miðvikudagur 1. maí, 2024
7.1 C
Reykjavik

Töluvert tjón á álveri Alcoa Fjarðaráls í veðurofsanum: „Við vorum án rafmagns í um tvo tíma“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ljóst er að töluvert tjón hafi orðið á álveri Alcoa Fjarðaráls við Reyðafjörð í skakveðrinu í fyrradag.

Samkvæmt Austurfrétt er ekki enn alveg ljóst hversu miklar skemmdir urðu á byggingum Alcoa Fjarðaráls á Reyðarfirði í bálviðrinu í fyrradag. Enn er áhersla á að koma starfseminni í samt lag eftir rafmagnsleysi.

„Það er ljóst að talsvert foktjón varð á álverinu, aðallega á klæðningum sem hafa losnað af byggingum. Þetta er samt ekki risatjón eins og sums staðar, hér vantar engar hliðar,“ sagði Dagmar Ýr Stefánsdóttir, upplýsingafulltrúi álversins í samtali við Austurfrétt í gær.

Hins vegar er ljóst að töluvert tjón varð í kringum Mjóeyrarhöfn og á Hrauni en er í næsta nágrenni við álverið. Þá varð einnig mikið tjón í þéttbýlinu á Reyðarfirði.

Sagði Dagmar að þeim tilmælum hafi verið komið til starfsfólks álversins að halda sig innandyra í fyrradag en þar var nóg að gera eftir að rafmagnið fór af álverinu.

„Veðrið fyrir utan var eitt, annað var rafmagnsleysið innanhúss. Slíkt skapar mikið álag hér. Við vorum án rafmagns í um tvo tíma. Síðan tekur talsverðan tíma að koma framleiðslunni á rétt ról. Það er enn okkar aðaláhersla, þess vegna höfum við ekki kannað skemmdirnar nákvæmlega enn. Við gerum það þegar veðrið verður að fullu gengið yfir. Okkur er efst í huga hrós til starfsfólksins sem stóð vaktina. Það var meira en að segja það og fólkið stóð sig frábærlega. Eins er vert að hrósa Landsneti og Landsvirkjun fyrir skjót viðbrögð þegar rafmagnið fór,“ sagði Dagmar Ýr.

- Auglýsing -

Þá segir hún að það bæti einnig í álagið að vegna lokunar vegarins yfir Fagradal hafi vaktaskiptin í álverinu ekki geta farið fram með eðlilegum hætti, „Við höfum gott fólk á fjörðunum sem hjálpar til við að leysa þá af sem ekki hafa komist til vinnu.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -