Veðurstofa Íslands hefur gefið úr rauða veðurviðvörun fyrir Austurland: „Norðvestan rok eða ofsaveður, 25-33 m/s með vindhviðum yfir 45 m/s, hvassast sunnantil. Miklar líkur á foktjóni og grjótfoki og fólk er hvatt til þess að tryggja lausamuni. Ekkert ferðaveður á meðan veðrið gengur yfir.“
Vegagerðin hefur gefið út að óvissustig ríki á Suðaustur- og Austurlandi og búast megi við lokunum á Hringvegi 1 frá Kirkjubæjarklaustri að Djúpavogi. Sama gildi um Fagradal.
Jafnframt er vert að benda á athugasemd frá verðurfræðingi: „Hvessir í dag (laugardag), suðvestan hvassviðri eða stormur undir kvöld með snörpum vindhviðum.
Á morgun, sunnudag snýst í norðvestan storm eða rok á austurhelmingi landsins. Þá mun snögg kólna með slyddu eða snjókomu á heiðum og fjallvegum á Norður- og Austurlandi.“
Athugið: Óvissustig er á leiðum á Suðaustur- og Austurlandi á morgun og má búast við lokunum vegna óveðurs á Hringvegi (1) frá Kirkjubæjarklaustri að Djúpavogi, sem og á Fagradal. Þessar lokanir myndu taka gildi snemma dags og haldast yfir daginn, standist veðurspár. #færðin
— Vegagerðin | Iceland Roads (@Vegagerdin) September 24, 2022