Ástralskur ferðamaður lést eftir hákarlaárás á fjölmennri strönd í Nýju Kaledóníu síðdegis í gær. Maðurinn var á sundi við bát sem staðsettur var um 150 metrum frá Chateau-Royal ströndinni þegar hákarlinn réðst á hann og beit hann nokkrum sinnum. Björgunarsveitarmenn á ströndinni voru látnir vita af árásinni eftir að hafa heyrt öskur berast frá fólki í sjónum. Samkvæmt erlendum miðlum var ströndin rýmd samstundis en tveir menn náðu manninum upp í bát og flýttu sér með hann að ströndinni. Aðrir sundmenn náðu að koma sér undan eftir að hafa orðið vitni að árásinni.
Sjúkraliðinn Dr Vincent Ouradou var á svæðinu þegar árásin átti sér stað en í samtali við útvarpsstöðina La 1ère sagði hann að maðurinn, sem var 59 ára gamall, hefði verið bitinn að minnsta kosti þrisvar sinnum í handleggi og fætur. Nokkrir óbreyttir borgarar komu manninum til aðstoðar en þrátt fyrir endurlífgunartilraunir var maðurinn úrskurðaður látinn á vettvangi.
Sonia Lagarde, borgarstjóri Noumea, fyrirskipaði lokun meirihluta stranda á svæðinu í kjölfar árásarinnar og voru drónar settir á vettvang til að staðsetja hákarlana. Þá fyrirskipaði Sonia að allir hákarlar á svæðinu yrðu handsamaðir. Rannsókn er hafin vegna málsins en árásin átti sér stað innan svæðis sem er vaktað af björgunarsveitamönnum.