Frosti Logason biður fólk að spara gífuryrðin í umræðunni um Eddu Falak og Heimildina.
Síðan Frosti Logason sakaði Eddu Falak um lygar í gömlum viðtölum hafa ansi margir tjáð sig um málið, bæði til að verja Eddu og til að tala gegn henni. Sumir hafa gengið of langt í gífuryrðum og dónaskap. Frosti biðlaði í dag til fólks sem er honum sammála „um að Edda Falak hafi misstigið sig eða farið offari í sinni umfjöllun að stíga varlega til jarðar í að tjá sig um þessi mál.“ Þá seir hann að engum sé greiður gerður með að fara fram með gífuryrðum.
„Ég vil vinsamlegast biðja fólk sem er mér sammála um að Edda Falak hafi misstigið sig eða farið offari í sinni umfjöllun að stíga varlega til jarðar í að tjá sig um þessi mál. Það er engum greiði gerður með að fara fram með gífuryrðum.