Samstöðumyndband sem bar yfirskriftina #Égtrúi og vakti mikla athygli fyrr í vikunni hefur verið tímabundið tekið úr dreifingu. Edda Falak og Fjóla Sigurðardóttir, stjónendur Eigin kvenna, stóðu að útgáfu myndbandsins, en í kjölfar birtingu skapaðist töluverð umræða á samfélagsmiðlum þar sem val þeirra einstaklinga sem í því birtast var gagnrýnt, til að mynda Magnús Sigurbjörnsson og Pálmar Ragnarsson.
Ný #metoo bylgja gengur nú á samfélagsmiðlum og hafa ótalmargir þolendur, og einnig einhverjir gerendur, stigið fram og sagt sína sögu. Bylgjan hófst í tengslum við mál Sölva Tryggvasonar, sem sakaður var um ofbeldi gegn konum. Sölvi hefur síðan fjarlægt allt hlaðvarpsefni sitt.
Þeir Magnús og Pálmar greindu frá því í gær að þeir hefðu báðir farið yfir mörk kvenna og kváðust taka ábyrgð á gjörðum sínum. „Það er ljóst að ég ásamt öðrum þurfum að horfast í augu við það að hafa farið yfir mörk,“ skrifar Magnús á Instagram síðu sinni.„Mér þykir það leitt of við ég biðjast afsökunar. Ég trúi því einlægt að umræðan sem hefur átt sér stað hafi fengið alla til að hugsa. Umræðan hefur ekki orðið til án tilefnis og ég trúi því að ég og við karlmenn getum gert betur.“
Ekki fullkominn
Pálmar segir í sinni færslu karlmenn ekki mega útiloka það að hafa farið yfir mörk annarra á einhverjum tímapunkti. Hann hafi sjálfur brugðist góðri vinkonu á yngri árum með því að taka ekki afstöðu.
„Ef við útilokum það og förum í vörn erum við að taka stórt skref aftur á bak í umræðunni,“ sagði Pálmar. „Ég sjálfur hef mjög líklega farið yfir mörk kvenfólks í mínu lífi. Á því vil ég taka ábyrgð og biðjast afsökunar, Ég er ekki fullkominn þó ég kjósi að taka þátt í umræðunni. Það er mjög mikilvægt að það komi fram.“
Aðrir mögulega settir inn
Edda segir í samtali við Vísi að um sé leiðinlegt mál að ræða en hafi boðskapurinn ekki breyst. Hún segir að skömmu eftir birtingu myndbandsins hafi farið sögur af stað, „um alls konar“, þar á meðal fólk sem komi fram í myndbandinu.
„Við erum að reyna að finna út hvað er best í stöðunni,“ segir Edda og telur öruggt að myndbandið verði aftur birt, en verða þá ákveðnir einstaklingar fjarlægðir og aðrir settir inn. „Við ætlum að pósta því aftur. Hvort sem það verður án einhvers, eða einhver auka, eða bara eins,“ segir Edda.