Föstudagur 3. maí, 2024
4.8 C
Reykjavik

Býður hinu ómögulega birginn: Trommar ótrúlegustu lög með einni hendi

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Trommarinn og YouTube stjarnan El Estepario Siberiano gerir sér það að leik í nokkrum myndböndum sínum að spila tæknilega flókin lög á trommur en bara með einni hendi. Á meðan hann trommar lögin notar hann hina hendina t.d. í að reykja, drekka eða horfa ástleitnum augum á púða.

Þegar myndböndin dúkkuðu fyrst upp munu gárungar hafa gert því skóna að hann hafi  „svindlað“ með því að hraða myndböndunum en svar hans við því var einfalt; hann tók upp myndbandið hér að neðan þar sem hann leikur með einni hendi og heldur á taktmæli í hinni.

 

Fjölmargir hafa birt myndbönd af sér að bregðast við því þegar þau upplifa myndböndin í fyrsta sinn, enda er þetta ansi magnað að sjá.

El Estepario Siberiano heitir í raun Jorge Garrido og er frá Valencia á Spáni. Hann lék síðast með Spænsku þungarokkshljómsveitinni Saratoga en ákvað að hætta í ár, m.a. til að einbeita sér YouTube frægðinni en kappinn er með rúmar 2 milljónir fylgjenda.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -