Föstudagur 26. apríl, 2024
5.1 C
Reykjavik

Hert samkomubann: Ekki fleiri en 20 mega koma saman

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Heilbrigðisráðherra hefur tilkynnt að samkomubann miðist nú við að eigi fleiri en tuttugu einstaklingar komi saman hverju sinni. Bannið tekur gildi á miðnætti annað kvöld, mánudaginn 23. mars. Gerir ráðherra þetta í samráði við tilmæli sóttvarnalæknis til að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu COVID-19 í samfélaginu.

Allar fjöldasamkomur þar sem fleiri en 20 manns koma saman verða óheimilar meðan takmörkunin er í gildi. Á það jafnt við hvort sem fólk kemur saman í opinberum rýmum eða einkarýmum. Skal tryggt að hægt sé að hafa a.m.k. tvo metra á milli einstaklinga.

Sundlaugum, líkamsræktarstöðvum, skemmtistöðum, spilasölum, spilakössum og söfnum verður lokað á meðan þessum takmörkunum stendur.

Starfsemi og þjónusta sem krefst mikillar nálægðar milli fólks eða skapar hættu á of mikilli nálægð er óheimil. Þar undir fellur allt íþróttastarf og einnig allar hárgreiðslustofur, snyrtistofur, nuddstofur og önnur sambærileg starfsemi. Þetta á einnig við um íþróttastarf þar sem notkun á sameiginlegum búnaði getur haft smithættu í för með sér, s.s. skíðalyftur.

Á vinnustöðum skal tryggt að aldrei séu fleiri en tuttugu einstaklinga í sama rými. Þessar takmarkanir eiga einnig við um almenningssamkomur og aðra sambærilega starfsemi.

Takmörkun á skólahaldi verður þó áfram óbreytt og munu börn mæta áfram í skóla líkt og í síðustu viku.

- Auglýsing -

Þessar takmarkanir eiga einnig við um almenningssamkomur og aðra sambærilega starfsemi.

Sérstakar reglur gilda um matvöruverslanir og lyfjabúðir þar sem heimilt verður að hafa allt að 100 manns inni í einu. Ef matvöruverslanir eru yfir 1.000 fermetrar er heimilt að hleypa til viðbótar einum einstaklingi fyrir hverja tíu fermetra þar umfram en þó aldrei fleiri en 200 viðskiptavinum.

Helstu áhrif frekari takmörkunar:
Allar fjöldasamkomur þar sem fleiri en 20 manns koma saman eru óheimilar meðan takmörkunin er í gildi. Á það jafnt við hvort sem fólk kemur saman í opinberum rýmum eða einkarýmum.

- Auglýsing -

Hvar sem fólk kemur saman og í allri starfsemi skal tryggt að hægt sé að hafa a.m.k. 2 metra á milli einstaklinga.

Á öllum vinnustöðum eða þar sem önnur starfsemi fer fram skal vera tryggt að ekki séu fleiri en 20 einstaklingar í sama rými. Þessar takmarkanir eiga einnig við um almenningssamgöngur og aðra sambærilega starfsemi.

Sérstakar reglur gilda um matvöruverslanir og lyfjabúðir. Þar verður heimilt að hafa allt að 100 manns inni í einu, að því gefnu að hægt sé að halda a.m.k. 2 metra fjarlægð milli einstaklinga. Ef matvöruverslanir eru yfir 1.000 m2 er heimilt að hleypa til viðbótar einum einstaklingi fyrir hverja 10 m2 þar umfram en þó aldrei fleiri en 200 viðskiptavinum.

Lokun samkomustaða og starfsemi vegna sérstakrar smithættu
Sundlaugum, líkamsræktarstöðvum, skemmtistöðum, spilasölum, spilakössum og söfnum skal lokað meðan á þessum takmörkunum stendur.

Starfsemi og þjónusta sem krefst mikillar nálægðar milli fólks eða skapar hættu á of mikilli nálægð er óheimil. Þar undir fellur allt íþróttastarf og einnig allar hárgreiðslustofur, snyrtistofur, nuddstofur og önnur sambærileg starfsemi. Þetta á einnig við um íþróttastarf þar sem notkun á sameiginlegum búnaði getur haft smithættu í för með sér, s.s. skíðalyftur.

Þrif og sótthreinsun almenningsrýma
Í öllum verslunum, opinberum byggingum og á öðrum stöðum innandyra þar sem umgangur fólks er nokkur skal þrifið eins oft og unnt er, sérstaklega algenga snertifleti.

Við alla innganga skal tryggja aðgang að sótthreinsandi vökva fyrir hendur og eins víða um rými og talin er þörf á, s.s. við afgreiðslukassa í verslunum.

Undanskilið ákvörðun um hertar takmarkanir
Sérstök auglýsing sem áður hefur verið birt gildir um takmörkun skólastarfs. Þó skal fylgja fjarlægðarmörkum um tveggja metra fjarlægð milli einstaklinga eftir því sem það á við og mögulegt er, einkum gagnvart eldri börnum.

Takmörkunin gildir ekki um nauðsynlega heilbrigðisþjónustu sem ekki getur beðið.

Takmörkunin tekur hvorki til alþjóðaflugvalla og -hafna, né til loftfara og skipa.

Undanþágur
Heilbrigðisráðherra getur veitt undanþágu frá takmörkun á samkomum í þágu allsherjarreglu eða öryggis ríkisins eða til verndar lífs eða heilsu manna eða dýra.

Sóttvarnalæknir getur veitt undanþágu frá sóttkví vegna samfélagslegra ómissandi innviða sem mega ekki stöðvast vegna lífsbjargandi starfsemi, s.s. raforku, fjarskipta, samgangna, heilbrigðisstarfsemi, löggæslu, sjúkraflutninga og slökkviliða.

Allar undanþágur sem veittar hafa verið vegna sóttkvíar falla úr gildi og þurfa þeir sem slíkt hafa fengið að sækja um að nýju sé þörf á því.

Heilbrigðisráðherra mun birta í Stjórnartíðindum nýja auglýsingu um takmörkun á samkomum í stað þeirrar eldri sem fellur þar með úr gildi. Gildistími verður óbreyttur, þ.e. til 5. apríl.

Takmörkunin tekur til landsins alls. Stjórnvöld endurmeta takmörkunina eftir því sem efni standa til, hvort heldur til að aflétta henni fyrr, eða framlengja gildistímann.

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -