Hljómsveitin Eilíf Sjálfsfróun mun stíga á stokk og gleðja gesti NorðanPaunk en hljómsveitin hefur verið á miklu flugi síðan hún lenti í 2. sæti í Músíktilraunum árið 2021.
Tónlistarhátíðin NorðanPaunk verður haldin í 4. til 6. ágúst í Vestur-Húnavatnssýslu en hún hefur verið haldin síðan árið 2014. Hátíðinni er ætlað að vera fjölskyldusamkoma fyrir íslenska pönk samfélagið og munu fleiri en 50 hljómsveitir spila á hátíðinni. Hljómsveitirnar Graveslime, Gróa, Dys, GÓÐxÆRI og Eilíf Sjálfsfróun eru meðal þeirra frábæru íslensku hljómsveita sem koma þar fram. Einnig munu erlendir tónlistarmenn á borð við Sordide, Dödsrit og Sangre de Muerdago spila fyrir gesti hátíðarinnar.