Laugardagur 4. maí, 2024
3.8 C
Reykjavik

Iðkun þakklætis – verkfæri til vellíðunar

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Eftir / Kristínu Snorradóttur

Það verður að segjast eins og er að þetta ár, 2020, hefur verið alveg með ólíkindum. Heill hellingur af áskorunum og erfiðum verkefnum. Það hefur einkennst af COVID-veirunni og baráttu við hana, sem og sett samfélagið og heiminn allan á hvolf. Fólk missir atvinnu, streitustig hefur aukist og alls konar álag sem reynir á allar manneskjur, sama á hvaða aldri við erum.

Ég mæli með þakklætisiðkun
Ég get sannarlega mælt með því að stunda þakklæti sér til hjálpar á erfiðum tímum. Það hljómar undarlega en það er einu sinni bara þannig að þakklæti er magnað verkfæri og þegar við lærum að nota það verður tilveran svo miklu auðveldari og við förum að sjá tækifæri sem voru okkur ekki sýnileg áður.

Ef ég vitna í jógafræðin þá segir þar:
„Það sem þú veitir athygli vex og dafnar“

Í erfiðleikunum felast tækifæri, en til að sjá umframerfiðleika þarf að taka stjórnina í hausnum sem lætur oft ansi ófriðlega og þar er þakklæti frábært verkfæri sem við getum öll nýtt og er alveg ókeypis.

Hvernig stundar maður svo þetta þakklæti?
Það má gera á ýmsa vegu og stundum þarf bara að þykjast vera þakklátur til þess að komast þangað. Við höfum alltaf eitthvað til að vera þakklát fyrir, eins og t.d að hafa sjón eða heyrn, fætur sem bera okkur, eiga mat á diskinn okkar, kalda vatnið í krananum, fólkið okkar, tannburstann og bros frá náunganum.
Sama hvað lífið er erfitt er alltaf eitthvað sem er þakkarvert og með því að sækja þessa þakkarverðu hluti og hugsa um að þar sé ljós punktur, finnum við enn fleiri ljósa punkta og þar með fleiri þakkarefni (töfrabrögð sem allir geta stundað).

- Auglýsing -

Hverju breytir þetta þakklæti?
Með þessu breytir maður líðan sinni og fer að finna þessa góðu þækklætistilfinningu sem er ótrúlega notaleg í kroppnum. Ein leið sem ég hef nýtt sjálf og oftar en ekki bent fólki sem ég hef stutt við á, er að halda þakklætisdagbók. Fá sér fallega bók og gefa sér stund á hverjum degi. Mér finnst persónulega best að gera þetta á kvöldin og skrifa niður minnst þrjú atriði sem hægt er að þakka fyrir. Þetta er því ekki erfitt verkefni.

Það sem gerist svo er að þessi þrjú atriði opna þakklætisaugun og viðkomandi sér fleira og fleira sem er þakkarvert og að endingu sjáum við þakklæti í erfiðleikunum því jú, erfiðleikar skila okkur alltaf einhverjum þroska.

Margföldunaráhrifin eru mögnuð
Njótum þess að finna til þakklætis og á þann hátt gera heiminn jákvæðari. Í hvert sinn sem þú finnur meira þakkarefni, finnur þú fyrir betri líðan og það er bara þannig að góð líðan gefur frá sér góða orku og betri samskipti.

- Auglýsing -

Í dag er ég þakklát fyrir svo margt, en til þess að nefna eitthvað þá er ég þakklát fyrir fjölskylduna mína, vini mína, góðan kaffibolla í morgun og já, íslenska rigningarloftið hér í höfuðstaðnum (það kennir mér að elska sólina heitar þegar hún kemur).

Þakklæti til ykkar, mínu kæru lesendur.

Höfundur er starfandi markþjálfi og félagi í FKA.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -