- Auglýsing -
Dagbók lögreglunnar segir frá því að maður datt í stiga; hlaut hann áverka á höfði og missti meðvitund.
Þurfti að flytja manninn með hraði í sjúkrabíl á bráðadeild til aðhlynnningar.
Þá var einnig sagt frá því í dagbókinni að tvær erlendar konur hafi verið handteknar á hóteli í miðborginni; grunaðar um fjársvik.
Voru konurnar vistaðar fyrir rannsókn málsins í fangageymslu lögreglu.