Varaformaður BHM, formaður Félags leikstjóra á Íslandi og fyrrverandi umhverfisráðherra, Kolbrún Halldórsdóttir, hefur tekið þá ákvörðun að bjóða sig fram til embættis formanns BHM, Bandalags háskólamanna.
Tilkynnti Kolbrún formönnum aðildarfélaga BHM um þetta í pósti í dag.
Friðrik Jónsson, núverandi formaður BHM, greindi frá því fyrir tveimur vikum að hann ætlaði ekki gefa kost á sér til áframhaldandi setu; Friðrik hefur gegnt stöðunni í eitt kjörtímabil – tvö ár.
Íáðurnefndum pósti segir Kolbrún að hún hafi á formannaráðsfundi í lok síðasta mánaðar greint formönnum félaganna frá því að hún hefði komist að þeirri niðurstöðu að kraftar hennar myndu nýtast bandalaginu vel; hún væri því tilbúin að bjóða sig fram til næstu tveggja ára.
Kolbrún hefur einnig sett framboð sitt í réttan farveg samkvæmt lögum BHM; hefur tilkynnt framboð sitt til framboðsnefndar BHM sem og kjörstjórnar.