Föstudagur 10. maí, 2024
10.8 C
Reykjavik

Feita fólkið er vandamál

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Íslenska þjóðin er að þyngjast. Þetta á sérstaklega við um ungt fólk sem margt hvert glímir við ofþyngd. Við erum að nálgast það ástand sem er á mörgum í Bandaríkjunum þar sem offitusjúklingar eru á nánast við hvert fótmál. En á sama tíma og feitum fjölgar á landinu þá aukast fordómar gagnvart þessum hópi.

Ástæðan fyrir ógöngum okkar er offramboð af sykruðum vörum, hveiti og hverskyns orkudrykkjum. Sykur er eitur sem veldur fíkn ekki síður en áfengi eða dóp. Sykur er líklega dóp feita mannsins. Þetta framboð hefur leitt til þess stjórnleysis sem veldur því að fjölmargir glíma við takmarkaða hreyfigetu. Sá feiti glímir ekki aðeins við það að eiga í erfiðleikum með hreyfingu. Hann mætir líka fordómum annarra sem leiðir til sálarangistar. Stjórnvöld gera sáralítið til þess að takmarka neyslu á óhollustu og bjarga fólki frá því að verða hálffarlama og afmyndast með tilheyrandi sársauka og sálarkvölum. Ofneysla á mat og sætindum er líklega okkar stærsti heilbrigðisvandi og mun kosta heilbrigðiskerfið himinháar upphæðir á næstu áratugum. Sjúkdómum sem tengjast hjarta og æðakerfi fjölgar með ótímabærum dauðsföllum og skertri getu til að lifa sæmilegu lífi. Þetta er okkar stærsta heilbrigðisvandamál. Það kann að hljóma skringilega á tímum þegar kórónaveiran tröllríður heiminum en samt er það svo að takmarkanir vegna veirunnar hafa leitt til þess að fleiri stunda útivist en áður og efla þannig heilsu sína og lífsgæði. Veiran er smámál í samanburðinum.

Einn góðan veðurdag munum við koma böndum á veiruna og lífið kemst í fastar skorður. Þá mun sem fyrr standa eftir vandinn vegna offitunnar. Tvær meginleiðir eru til þess að bjarga fólki. Önnur er sú að stuðla að aukinni hreyfingu með því að leggja stóraukið fjármagn til samtaka sem stuðla að slíku. Hin er að grípa til aðgerða sem tryggja að fólk nærist á heilsusamlegra fæði.

Hreyfingin næst fram með áróðri og umbun. Efla þarf starf hreyfihópa af öllu tagi og breiða þannig út boðskap og kúltúr sem dugir til að auka hreyfingu. Slegið hefur verið á þá tölu að 100 milljónir króna geti sparast með einstaklingi sem er forðað frá því að fá ótímabært hjartaáfall. Það er því augljós ávinningur fyrir þjóðina að fyrirbyggja áunnin veikindi með öflugri heilsurækt. Hver króna þar er gulls ígildi.

Hin hliðin er sú að takmarka neyslu á sykri og annarri óhollustu með skattlagningu og takmörkun á sykurnotkun. Sykurinn er eitt versta eitur sem nútímamaðurinn glímir við. Smám saman hefur hann verið að breiðast út um allt eins og veira í uppgangi. Sem dæmi má nefna mjólkurvörur sem í dag eru margar hverjar hlaðnar þessum óþverra. Og sælgæti er víðast hvar otað að neytendum. Sykurskattur er eitt sem kemur fullkomlega til greina. Sá skattstofn ætti þó að verða til þess að lækka verð á hollari vörum eða hvetja fólk til hreyfingar.

Stjórnvöld verða að grípa til mótvægisaðgerða til að bjarga offitusjúklingum úr klóm ofáts og sykurs. Þar þarf að skoða málin frá öllum hliðum og horfa langt fram á veginn. Innræta þarf börnum heilsusamlegt líferni með hreyfingu og hollum mat. Skyndilausnir eru ekki til í svona málum. Lýðheilsa er okkar mikilvægasta mál í dag.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -