Föstudagur 3. maí, 2024
7.1 C
Reykjavik

Kjartan stýrir nýjum milljarða frumkvöðlasjóði

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Nú á haustmánuðum verður ýtt úr vör nýjum átta milljarða vísissjóði, Brunnur vaxtarsjóður, sem ætlað er að taka meðal annars þátt í frumkvöðla- og nýsköpunarverkefnum. Frumkvöðullinn Kjartan Örn Ólafsson hefur gengið til liðs við sjóðinn sem einn af fjárfestingarstjórum þess.

Sjóðurinn var stofnaður árið 2015. Kjartan hefur stofnað og rekið eigin nýsköpunarfyrirtækið bæði á Íslandi og í Bandaríkjunum. Má þar nefna félög eins og Basno, GRID, Já, Datamarket og TeaTime. Árið 2011 stofnaði Kjartan tæknifyrirtækið Basno Inc. sem starfar í New York og tryggði því fjármögnun frá leiðandi bandarískum vísisjóðum. Áður var hann um árabil framkvæmdastjóri á viðskiptaþróunarsviði fjölmiðlafyrirtæksins Bertelsmann Inc. í New York. Þar stýrði hann nýsköpunarverkefnum fyrir dótturfyrirtæki þess svo sem Random House, SonyBMG Music og Fremantle Media sem öll eru leiðandi á heimsvísu á sínu sviði.

„Kjartan hefur áratuga reynslu af árangursríku nýsköpunarstarfi. Hann er reyndur frumkvöðull bæði hér á Íslandi og erlendis auk þess að vera farsæll englafjárfestir. Hann hefur viðamikið tengslanet í frumkvöðla- og vísiheiminum í Bandaríkjunum. Við höfum kynnst vel í gegnum starfið hjá Brunni og vitum að við eigum leið saman. Það gleður okkur innilega að fá hann í teymið og sem meðeiganda í sjóðnum“, segir Árni Blöndal fjárfestingastjóri og annar stofnenda Brunns Ventures.

Undanfarin ár hefur Kjartan verið virkur í íslensku nýsköpunarstarfi bæði beint og í gegnum nýsköpunar- og viðskiptaþróunarfélag sitt Volta ehf. og hefur meðal annars verið valinn íslenskur englafjárfestir ársins af Nordic Startup Awards. Utan viðskiptalífsins hefur Kjartan setið í stjórnum fjölmargra samtaka og stofnana svo sem American-Scandinavian Foundation, Hörpu tónlistarhúss, verið stjórnarformaður Listahátíðar í Reykjavík og er stjórnarformaður UNICEF á Íslandi.

Kjartan las heimspeki og rökfræði til BA-prófs við Háskóla Íslands og Háskólann í Genúa á Ítalíu, og lauk MBA-gráðu frá Harvard Business School. „Ég hef setið í stjórn Brunns vaxtarsjóðs frá stofnun og hef unnið náið með þeim Sigurði Arnljótssyni og Árna Blöndal, fjárfestingastjórum Brunns Ventures. Sjóðurinn hefur náð eftirtektarverðum árangri og því er spennandi að taka þátt í stofnun næsta sjóðs og slást í hópinn sem fjárfestingastjóri. Það er fjölmargt áhugavert að gerjast meðal íslenskra frumkvöðla. Ég hlakka til að vinna með þeim og nýta reynslu mína til að auka líkurnar á að íslensk nýsköpunarfyrirtæki nái árangri á heimsvísu“, segir Kjartan Örn Ólafsson.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -