Hljómsveitin Fjöll gaf út nýtt lag í gær en það ber heitið Í rokinu. Formaður VR, Ragnar Þór Ingólfsson snýr þar aftur á fornar slóðir og trommar af fagmennsku í laginu.
Samhliða útgáfunni gefur Fjöll út myndband við lagið. Það var tekið í sal gamla Tónabíós, sem nú er verið að gera upp og stendur til að opna á nýjan leik fyrir ýmis konar starfsemi á næstunni.
Þrír meðlimir Fjöll, Guðmundur Annas Árnason söngvari, Snorri Gunnarsson gítarleikari og Kristinn Jón Arnarson bassaleikari, hófu samstarf í hljómsveitinni Soma sem náði töluverðum vinsældum seint í níunni. Þeir hafa síðan unnið saman í hinum ýmsu hljómsveitum gegnum tíðina og er Fjöll sú nýjasta. Fjórði meðlimur sveitarinnar er svo Ragnar Þór Ingólfsson, sem spilar á trommur. Hann spilaði með hljómsveitunum Guði gleymdir og Los, einnig í níunni, en hefur nú dregið fram trommusettið á nýjan leik. Í rokinu var tekið upp í Hljóðrita og sá Kristinn Sturluson um upptöku og mix.
Fjöll á Facebook bit.ly/3Pt02AP
Fjöll á Instagram: bit.ly/3JrFSDk
Hægt er að sjá myndbandið hér fyrir neðan: