Föstudagur 3. maí, 2024
7.1 C
Reykjavik

Ína Berglind frá Fellabæ sigraði söngkeppni Samfés: „Ég man ekki eftir mér öðruvísi en syngjandi“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Hin Fellbæska Ína Berglind Guðmundsdóttir sigraði á dögunum söngkeppni Samfés, samtaka félagsmiðstöðva á Íslandi með frumsömdu lagi.

Austurfrétt tók viðtal við hina ungu og efnilegu söngkonu. Fram kemur í viðtalinu að í söngkeppni Samfés syngi unglingar á aldrinum 14 til 16 ára en Ína Berglind var annar tveggja fulltrúa Austurlands í keppninni í ár. Þó að flestir keppendur syngi lög eftir þekkt tónlistarfólk, leynast oft á milli frumsamið efni.

Ína Berglind keppti fyrir félagsmiðstöðina Nýung á Egilsstöðum en hún flutti lagið sitt „Tilgangslausar setningar.“ Enn sem komið er hefur Ína Berglind ekki gefið neitt út opinberlega en hefur síðustu mánuði verið duglega að koma fram víðsvegar um Austurland. Mun hún meðal annars koma fram á Skógardeginum mikla sem haldinn verður í Hallormsstaðarskógi á morgun. Setur hún stefnuna á uptökur í Stúdíó Síló.

„Ég samdi lagið fyrir nokkru síðan. Ég er búin að semja lengi og á töluvert af lögum en ég hef reyndar aðallega verið að gera það fyrir mig en ekki spilað mikið af því fyrir aðra. „Tilgangslausar setningar“ fjallar um komment sem festast stundum dálítið inni í manni og maður losnar ekki við. Þetta er byggt á persónulegri reynslu minni en ég vil samt ekki fara neitt nánar út í hvað það merkir,“ sagði Ína Berglind í viðtalinu við Austurfrétt.

„Annars eru langflest lögin mín byggð á einhverri reynslu því maður er að reyna að koma hugsunum sínum á blað. Persónulegustu lögin eru yfirleitt alltaf í rólegri kantinum.“

Lengi hefur tónlistin átt hug og hjarta Ínu. „Ég man ekki eftir mér öðruvísi en syngjandi og ég hef verið í tónlistarskóla líka frá því ég byrjaði í skóla. Ég er að æfa á gítar í Tónlistarskólanum í Fellabæ og söng í Tónlistarskólanum á Egilsstöðum um þessar mundir.

- Auglýsing -

En svo spila ég á fullt af öðrum hljóðfærum líka eins og píanó, ukelele og ég kann eitthvað fyrir mér á bassa þó ég sé kannski ekki mjög góð á hann ennþá. Önnur áhugamál eru ekki mikið til staðar. Ég hafði um tíma áhuga á íþróttum líka en tónlistin átti bara meira í mér og þar fékk ég miklu meiri útrás en í íþróttunum og fæ enn þann dag í dag.“

Þegar Ína Berglind er spurð að því hvaðan tónlistaráhuginn komi og hvort hann komi frá foreldrunum skellir hún upp úr: „Nei, áhuginn kemur ekki frá þeim og ég satt best að segja veit ekki hvaðan ég hef þennan áhuga. Ég veit til þess að langafi minn var mikið í tónlist á sínum tíma en hvernig minn áhugi kviknaði veit ég bara ekki.“

Ekki er Ína Berglind fyrsti Austfirðingurinn sem vinnur söngkeppni Samfés en hún Anya Hrund Shaddock frá Fáskrúðsfirði varst fyrst til þess árið 2017.

- Auglýsing -

Lengri útgáfa birtist í Austurglugganum. Hægt er að panta áskrift hér.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -